Skálar Ferðafélagsins allir opnir

Ólafur Örn stendur fyrir þiggja daga ferðum um Jökulgil, í nágrenni Landmannalauga. Hann segir svæðið ... stækka

Ólafur Örn stendur fyrir þiggja daga ferðum um Jökulgil, í nágrenni Landmannalauga. Hann segir svæðið eitt það fegursta á Íslandi. mbl.is/Rax

mbl.is Ingvar P. Guðbjörnsson - ipg@mbl.is

„Nú hefur allt verið opnað og það eru komnir verðir í alla okkar skála þar sem að við erum með verði. Það eru komnir verðir í Jökuldal á Sprengisandsleið, á Laugaveginn og hreint um allt þannig að við erum tilbúin að taka á móti fólki,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands, spurður um undirbúninginn fyrir sumarið hjá FÍ.

Ólafur segir að pantanir gangi vel og það sem sé vinsælast séu klassísku göngurnar á Laugaveginum og Hornströndum „sem eru sívinsæl svæði og láta ekkert undan núna. En það er ekki alveg fullpantað í skálana og enn eitthvað laust,“ segir Ólafur Örn.

„Við erum með ferðir og önnur ferðafélög eru með ferðir, en mest er fólk á eigin vegum í smáum hópum eða einstaklingar,“ segir Ólafur Örn aðspurður hvort mikið sé um skipulagðar ferðir.

Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands.

Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands.

Ólafur Örn nefnir nokkrar ferðir sem eru vinsælar. „Þjórsárver, inn í þetta dásamlega friðland sem farið er með alveg úrvals fararstjórum sem eru sérfræðingar. Prófessorar og fólk í fremstu röð með þekkingu á þessu svæði sem fer þarna,“ segir Ólafur Örn.

Nýjar ferðir um Vestur-Skaftafellssýslu

„Síðan höfum við verið að hefja ferðir á nýjar slóðir. Það er alltaf nauðsynlegt að hafa einhverjar nýjungar. Ég er með ferð í Lakagíga í ágúst og það er svæði þar sem við höfum ekki verið svo mikið. Það er mikill áhugi á þeirri ferð greinilega og hún er orðið svo til full, en ég ætlaði að hleypa fleirum að. Það er greinilega mikill áhugi og þetta er helgarferð,“ segir Ólafur Örn.

Ferðafélag Íslands er með starfssemi í Landmannalaugum, einum vinsælasta áningastað landsins.

Ferðafélag Íslands er með starfssemi í Landmannalaugum, einum vinsælasta áningastað landsins. mbl.is/Árni Sæberg

„Síðan er ferð sem ekki hefur verið farin áður á okkar vegum á Hólmsársvæðið, austan við Mýrdalsjökul. Þarna eru virkjanahugmyndir í gangi og það er meðal annars þess vegna sem við viljum að fólk fari og sjái þetta svæði og kynnist því. Þetta kallast stundum Öldufellsleið. Þarna eru líka vísindamenn sem eru fararstjórar,“ segir Ólafur Örn.

„Páll Ásgeir Ásgeirsson er með ferð í Hverfisfljót og nágrenni, austan við Klaustur. Magnað svæði þar sem Eldhraunið kom meðal annars fram.“

Þriggja daga gönguferð um Jökulgil á Landmannaafrétti

„Síðan er ég með ferð sem er á eitthvert fegursta svæði á Íslandi. Það er svæðið fyrir innan Landmannalaugar, ekki á Laugaveginum sjálfum heldur austar. Í Jökulgilið og Hattverið og norðan við Torfajökul.

Þetta er alveg stórbrotið svæði. Við göngum upp í Hrafntinnusker síðdegis. Síðan förum við í skarðið við Reykjafjöllin. Þar hefst gangan og við göngum yfir Reykjafjöllin og niður að Háuhverum og leggjum frá okkur byrðar. Förum upp í Kaldaklof upp í Háskerðing og skoðum háhitasvæðið þar og síðan förum við aftur niður að Háuhverum og förum síðan Sauðanefið niður í Hattver. Það að ganga Sauðanefið meðfram Litla-Hamragilinu og horfa ofan í það og koma Sauðanefið er ólýsanlegt.

Síðan göngum við næsta dag Uppgönguhrygginn og upp í Torfajökul og þá komum við niður með Sveinsgilskvíslinni og niður hrygginn á milli gilja. Vöðum svo aftur yfir Jökulkvíslina í Þrengslunum og í Hattver.

Þriðja og síðasta daginn er gengið upp á Skalla og svo ætlum við að ganga þar um og kíkjum ofan í Stóra-Hamragil og göngum svo niður í Laugar,“ segir Ólafur. Hann segir að mikið sé bókað í Jökulgilsferðir, en að til standi að fjölga þeim vegna eftirspurnarinnar.

Hægt er að kynna sér frekar starfsemi og ferðaplön Ferðafélagsins á heimasíðu þess hér.

Íshellir við Hrafntinnusker þar sem FÍ rekur skála á Laugaveginum.

Íshellir við Hrafntinnusker þar sem FÍ rekur skála á Laugaveginum. mbl.is/Rax

Göngumenn á leið frá Emstrum í Þórsmörk, en Ferðafélag Íslands rekur skála bæði á Emstrum ...

Göngumenn á leið frá Emstrum í Þórsmörk, en Ferðafélag Íslands rekur skála bæði á Emstrum og eins í Þórsmörk. mbl.is/Árni Sæberg

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Ráðist á mann í Dagsetrinu

Lögreglan
13:16 Ráðist var á karlmann í Dagsetri Hjálpræðishersins við Eyjarslóð í Reykjavík. Ekki fengust frekari upplýsingar frá Neyðarlínunni en á vef RÚV segir að ráðist hafi verið á manninn með hníf og að hann hafi verið með meðvitund þegar hann var fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Meira »

Ingólfur á toppinn í fyrramálið

Ingólfur Geir Gissurarson Everest-fari.
12:54 Ingólfur Geir Gissurarson og félagar hans í Everest 2013 hópnum eru komnir í suðurskarð fjallsins, í 7950 metra hæð. Hann á því eftir um 900 metra hæðarhækkun og ekki er ólíklegt að hann verði kominn á toppinn á milli klukkan 6 og 8 í fyrramálið, gangi allt að óskum. Meira »

Kennslanefnd skoðar líkið í dag

Frá Kaldbaksvík á Ströndum.
12:05 Kennslanefnd ríkislögreglustjóra mun í dag hefja vinnu við að bera kennsl á beinagrind sjórekins líks sem fannst í fjörunni í Kaldbaksvík á Ströndum í fyrradag. Þetta segir Bjarni Bogason rannsóknarlögreglumaður og formaður kennslanefndar. Meira »

Kjalvegur ekki boðleg ökuleið

Kjölur er ekki fær nema sérútbúnum fjallabílum um vetur.
12:02 Fulltrúar þriggja fyrirtækja í ferðaþjónustu skora á stjórnvöld að gera Kjalveg að boðlegri ökuleið fyrir ferðamenn. Segja þeir það skjóta skökku við að bjóða ferðamönnum upp á veg sem 75 þúsund manns nota á ári sem ekki sé almennilega fær. Ekki einu sinni yfir hásumarið. Meira »

Forsetinn ræðir reynslu Íslendinga

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
11:26 Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sækir í dag Alþjóðlegan leiðtogafund sem Viðskiptaskóli Lundúna, London Business School, og sjónvarpsstöðin CNN efna til. Þar mun forsetinn ræða við Richard Quest, stjórnanda viðskiptafrétta hjá CNN, um reynslu Íslendinga af glímunni við efnahagskreppuna Meira »

Tíðinda er að vænta innan skamms

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson munu halda áfram stjórnarmyndunarviðræðum í dag.
10:38 Formenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins funduðu um stjórnarmyndun um helgina og munu áfram funda í dag. Tíðinda er að vænta innan skamms, þó líklega ekki í dag. Þingflokkar flokkanna hafa ekki verið boðaðir á fund í dag, en vinna við stjórnarsáttmála er langt komin. Meira »

Yfirdómari einvígis aldarinnar látinn

Lothar Schmid, sem var yfirdómari skákeinvígis aldarinnar milli Spasskys og Fischers í Reykjavík 1972, árið ...
11:38 Lothar Schmid, sem var yfirdómari skákeinvígis Bobbys Fishers og Borís Spasskís í Reykjavík árið 1972 er látinn, 85 ára að aldri. Hann var einn fremsti skákmaður Þýskalands og vann til fjölda verðlauna á ferli sínum. Meira »

Kennir hundum að taka úr vél

Þjálfa má hunda til ýmissa verka, að sögn Auðar Björnsdóttur, hundaþjálfara á Ísafirði.
11:02 Auður Björnsdóttir á Ísafirði hefur þjálfað leiðsöguhunda fyrir blinda, aðstoðarhunda fyrir fatlaða og hund sem leikur í kvikmynd. Auður fékk áhuga á hundaþjálfun fyrir fatlaða er sonur hennar greindist með fötlun. Meira »

Helstu leiðir eru greiðfærar

Nú eru allar helstu leiðir á landinu greiðfærar.
09:48 Nú eru allar helstu leiðir á landinu greiðfærar, en þungatakmarkanir eru á fáeinum vegum. Vestfjarðarvegur (60) á sunnanverðum Vestfjörðum verður lokaður í Kjálkafirði um óákveðinn tíma vegna hættu á skriðuföllum. Þá vekur Vegagerðin athygli á að nú er allur akstur bannaður á flestum hálendisleiðum. Meira »

Góður árangur Íslendinga í CrossFit

Frá Crossfit keppni.
09:37 Evrópukeppnin í CrossFit fór fram í Ballerup í Danmörku um helgina en þar komu saman þeir einstaklingar og lið frá Evrópu sem unnu sér inn þátttökurétt fyrr á árinu. Íslendingar voru í þeim þremur liðum sem tryggðu sér sæti á leikunum í sumar. Meira »

Enn haldið sofandi eftir bílslys

Landspítalinn í Fossvogi.
08:45 Karlmanni, sem slasaðist við árekstur húsbíls og rútu á Snæfellsnesi í fyrradag, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítala. Samkvæmt upplýsingum frá lækni á deildinni er líðan hans óbreytt frá því í gær. Meira »

Í togi eftir troll í skrúfu

Björgunarskipið Húnabjörg á Skagaströnd.
07:29 Fiskveiðibátur fékk troll í skrúfuna um 50 kílómetra úti fyrir Skagaströnd um eitt leytið í nótt og þurfti aðstoð til að komast í land. Meira »

Hjón létust í slysi í Þjórsárdal

02:46 Hjón um sjötugt fundust látin í hjólhýsi í Þjórsárdal í gærkvöldi. Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning um níuleytið í gær um að hjón væru meðvitundarlaus í hjólhýsi. Tilraunir voru gerðar til endurlífgunar en án árangurs. Vísbendingar eru um að súrefnisskortur hafi orðið þeim að bana. Meira »

Eldur í eldhúsi veitingastaðar

Í gær, 22:23 Rýma þurfti veitingastaðinn Pítuna í Skipholti um sjöleytið í kvöld vegna elds í eldhúsi staðarins.  Meira »

Páfi fékk íslenskt eintak messubókarinnar

Pétur Bürcher, Reykjavíkurbiskup sést hér með Frans páfa í Róm
Í gær, 21:29 Pétur Bürcher, Reykjavíkurbiskup kaþólsku kirkjunnar afhenti Frans páfa nýju rómversku messubókina á íslensku við opinbera áheyrn í vikunni sem leið. Meira »

Sagt upp eftir 25 ára starf

Lára Hanna Einarsdóttir.
Í gær, 22:33 Láru Hönnu Einarsdóttur þýðanda var nýverið sagt upp hjá Stöð 2 eftir 25 ára starf með 20 daga fyrirvara. Uppsögnin barst með tölvupósti. Á sama tíma var Lára Hanna að ljúka erfiðri geislameðferð en hún greindist með krabbamein í desember. Meira »

Björguðu dreng út úr þvottavél

Í gær, 22:19 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út nýverið vegna tíu ára gamals drengs sem sat fastur inni í tromlu þvottavélar á heimili sínu. Meira »

„Mögulegt að velja hvort tveggja“

Í gær, 21:17 „Eins og sakir standa virðist innganga í Evrópusambandið ekki vera forgangsmál á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að halda í fullveldi eyríkisins eins og nafn hans gefur til kynna. Ef Ísland ákveður að hverfa frá viðræðum um inngöngu í sambandið verður landið alls ekki einangrað.“ Meira »
TIL SÖLU LÍTIÐ NOTAÐ FELLIHÝSI
Til sölu lítið notað Rockwood Freedom Offroad 191XR fellihýsi árgerð 6/2010. Tru...
Íbúðagisting á frábærum stað á Akureyri
Rúmgóð fjögura herberga íbúð í Brekkugötu 33. Uppábúin rúm fyrir 6 manns, net, f...
Til sölu ný. Flutninga / Farangurskerra
Vönduð, sinkhúðuð og álklædd. 2 hurðir m tjökkum opnat upp. Ber 750.kg. Kassi, L...
fjórir flottir eikar-stólar til sölu
er með fjóra flotta eikar-stóla á átta þúsund kr. stykkið, seljast saman. Sí...
 
15317 rs ut hýsing og rekstrarþj.
Tilboð - útboð
15317 - RS UT Hýsing og rek...
Varmadælur
Tilboð - útboð
Tilboð óskast í var...
Kísilverksmiðja í helguvík

Kísilverksmiðja í Helguvík Mat á u...
Aðalfundur skipasmíðastöðvar njarðvíkur

Aðalfundur Aðalfundur Skipasmíðastöð...