„Eignaupptaka hjá ríkinu“

Sjávarútvegsráðherra telur að útgerðirnar geti staðið undir gjaldinu. Myndin var …
Sjávarútvegsráðherra telur að útgerðirnar geti staðið undir gjaldinu. Myndin var tekin í dagróðri með Aðalbjörgu RE 50. mbl.is/Árni Sæberg

Lagðar verða á 12.700-13.800 milljónir króna í veiðigjöld á næsta fiskveiðiári samkvæmt samkomulagi þingflokkanna um þinglok. Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, telur þessa gjaldtöku munu stórskaða útgerðina.

„Þetta jafngildir yfir 100% skattlagningu. Ef litið er til gagna Hagstofu um afkomu útgerðar árin 2000-2010 og svo reiknað hvaða áhrif það hefði haft árið 2010 að leggja á um 13 milljarða króna veiðigjald er niðurstaðan sú að gjaldið hefði verið um 35% af framlegð útgerðarinnar,“ segir Sigurgeir í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag, og heldur áfram:

„Sé það hlutfall yfirfært á afkomu hvers árs þýðir slík gjaldtaka, miðað við skattaumgjörðina sem þá var við lýði, að gjöldin jafngilda yfir 100% tekjuskatti samanlagt tímabilið. Þetta er því fullkomin eignaupptaka og þjóðnýting hjá ríkinu á útgerðinni. Við stefnum í niðurbrot útgerðarinnar. Útgerðarmenn munu borga með hverju kílói sem þeir veiða. Það þýðir að útgerðin verður ekki rekin til langframa í núverandi mynd.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert