Lögreglan tilkynnir mælingar

Í fyrramálið mun lögreglan byrja að tilkynna á Facebook síðu sinni hvar ómerktur lögreglubíll verður við hraðamælingar yfir daginn.  Bíllinn er yfirleitt staðsettur í nánd við skóla og staði þar sem börn eru á ferli og brýn þörf er á að draga úr umferðarhraða.

Lögreglunni berast reglulega tilkynningar um að umferðarhraði sé of mikill á slíkum stöðum og slíkar mælingar eru eitt af tækjunum til að bregðast við vandanum. Yfir tuttugu þúsund manns fá upplýsingar frá lögreglu á Facebook og því ættu margir að geta fylgst með ferðum bílsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert