Breytingar hjá Reiknistofu bankanna
Í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Reiknistofu bankanna hf. á hluta af rekstri Teris hefur samningurinn tekið gildi og nýtt skipulag verið innleitt hjá Reiknistofu bankanna.
Samkvæmt tilkynningu frá Reiknistofu bankanna er markmiðið með kaupunum að skapa öflugt og traust þekkingarfyrirtæki fyrir viðskiptavini og starfsmenn sem efla muni þróun framsækinnar fjármálaþjónustu á Íslandi. Með samrunanum sé tryggður áframhaldandi rekstur og þróun á einu fjölbankalausnunum sem í boði eru og viðskiptavinir Teris hafa nýtt sér. Í tilkynningunni segir að þessar lausnir séu veigamikill þáttur í að tryggja áframhaldandi rekstur Sparisjóðanna í landinu.
Reiknistofa bankanna hf. er í eigu helstu fjármálafyrirtækja landsins, þar á meðal banka, sparisjóða og kortafyrirtækja. Fyrirtækið var stofnað 1973 sem sameignarfélag en var breytt í hlutafélag í janúar 2011.
Nýtt skipurit Reiknistofu bankanna er eftirfarandi:
Friðrik Þór Snorrason, forstjóri
Friðrik var ráðinn forstjóri Reiknistofu bankanna í febrúar 2011. Hann var framkvæmdastjóri tækni- og rekstrarþjónustufyrirtækisins Skyggnis 2008-2011 (nú hluti af Nýherja) og áður framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Nýherja. Friðrik starfaði á árunum 2000-2003 sem forstöðumaður hagdeildar Strax Inc. í Bandaríkjunum. Á árunum 1998-2000 vann hann sem stjórnunarráðgjafi hjá Branstock Consulting á Bretlandi. Hann var einnig greinandi hjá Economist Intelligence Unit á árunum 1997-1999.
Friðrik lauk BA-prófi í alþjóðasamskiptum frá University of Wisconsin í Bandaríkjunum meistaraprófi í sama fagi frá London School of Economics í Englandi.
Þorsteinn Björnsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og ráðgjafar
Þorsteinn hóf störf sem framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar- og Ráðgjafasviðs við kaup
Reiknistofunnar á meginhluta rekstar Teris í Júní 2012. Hann starfaði áður hjá Teris (áður
Tölvumiðstöð sparisjóðanna) frá 1997, síðast sem framkvæmdastjóri félagsins, frá miðju árinu 2011. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri Þróunarsviðs
Þorsteinn lauk BS-prófi í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík
Guðjón Steingrímsson, framkvæmdastjóri hugbúnaðarþróunar
Árið 2011 tók Guðjón við starfi framkvæmdastjóra Hugbúnaðarlausna RB en hann hafði áður starfað sem framkvæmdastjóri Kerfissviðs RB frá árinu 1988. Guðjón hóf störf hjá Reiknistofu bankanna við forritun og hönnun tölvukerfa árið 1975. Hann vann fyrstu árin sem forritari og verkefnastjóri.
Guðjón lauk BSc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Einar Birkir Einarsson, framkvæmdastjóri tæknireksturs og þjónustu
Einar Birkir var ráðinn framkvæmdastjóri Rekstrar- og öryggislausna Reiknistofu bankanna hf í ágúst 2011. Hann var framkvæmdastjóri lánasviðs Byrs hf á árunum 2009-2011 og frá árinu 2007 starfaði hann sem útibússtjóri Byrs í Garðabæ. Einar Birkir var framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Vodafone og forverum þess fyrirtækis á árunum 2000-2005 og á árunum 2006 til 2007 framkvæmdastóri Menor A/S í Noregi og prentsmiðjunnar Gutenberg. Á árunum 1998-2000 starfaði hann sem þjónustustjóri hjá Skýrr hf.
Einar Birkir lauk BSc-prófi í rafmagnsverkfræði frá Aarhus Tekniske Hojskole á Jótlandi og MSc frá DTU í Kaupmannahöfn.
Hanna María Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Rekstrar og fjármálasviðs
Hanna María var ráðin framkvæmdastjóri Rekstrar- og fjármálasviðs Reiknistofu bankanna í júní 2012. Hún var áður fjármálastjóri hjá Teris (áður Tölvumiðstöð sparisjóðanna) frá árinu 2011 og mannauðsstjóri hjá sama fyrirtæki frá árinu 2009. Á árunum 2007-2009 starfaði Hanna María hjá SPRON sem þjónustustjóri
Hanna María lauk BSc-prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst.






