Magnús verður bæjarstjóri í Garði

Magnús Stefánsson, fv. félagsmálaráðherra verður bæjarstjóri í Garði.
Magnús Stefánsson, fv. félagsmálaráðherra verður bæjarstjóri í Garði. mbl.is/Jim Smart

Magnús Stefánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, verður næsti bæjarstjóri í Garði. Gengið verður frá ráðningu Magnúsar á bæjarstjórnarfundi í hádeginu á morgun.

Alls bárust 30 umsóknir um starf bæjarstjóra sem var auglýst eftir að nýr meirihluti í Garði sagði upp ráðningarsamningi við Ásmund Friðriksson.

„Það verður tekið fyrir á morgun um hádegið,“ segir Davíð Ásgeirsson, fulltrúi L-listans í bæjarstjórn Garðs. Hann reiknar fastlega með því að ráðning Magnúsar verði samþykkt á fundinum.

Magnús vildi ekki tjá sig um fyrirhugaða ráðningu fyrr en eftir fundinn á morgun.

Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórninni höfðu ekki heyrt um fyrirhugaða ráðningu Magnúsar þegar mbl.is leitaði álits hjá þeim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert