Mótmælandi handtekinn

Maðurinn var handtekinn fyrir að hindra störf lögreglumanna.
Maðurinn var handtekinn fyrir að hindra störf lögreglumanna.

Rúmlega tvítugur karlmaður var handtekinn við  rússneska sendiráðið við Túngötu. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu veittist maðurinn að lögreglumönnum sem höfðu afskipti af öðrum aðila sem virtist ætla að draga einhverja dulu upp í flaggstöng sendiráðsins.

Maðurinn er nú til yfirheyrslu hjá lögreglu. Hann verður væntanlega kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt og fyrir að hindra lögreglumenn í starfi.

Maðurinn sem var handtekinn var að mótmæla handtökum rússneskra yfirvalda á meðlimum pönkhjómsveitarinnar Pussy Riot. Meðlimirnir, sem eru allir kvenkyns, voru handteknar vegna mótmæla við stjórn Vladimir Putins.

Boðað var til samstöðufundar fyrir utan sendiráð Rússlands í dag. Mótmælendurnir segja að brotið hafi verið á grundvallar mannréttindum kvennanna en þær hafa verið í haldi án dóms frá því í mars.

Maðurinn var handtekinn fyrir að hindra störf lögreglumanna.
Maðurinn var handtekinn fyrir að hindra störf lögreglumanna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert