Um klukkan þrjú í nótt handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þrjá menn um borð í erlendu skipi við Miðbakka í Reykjavíkurhöfn. Mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að reyna að koma sér til Ameríku en voru hins vegar fluttir í fangageymslur.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu leikur grunur á að þeir hafi reynt þetta áður en málið er í rannsókn.
Tæpri klukkustund síðar var svo annar maður handtekinn um borð í Sæbjörginni. Þar var erlendur karlmaður á ferð og reyndist hann mjög ölvaður.
Segir lögregla manninn ekki hafa getað gert grein fyrir veru sinni um borð í skipinu og er hann nú vistaður í fangageymslum.
Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu og er málið í rannsókn.