Skúta strand við Skerjafjörð

Frá strandstað skútunnar í kvöld.
Frá strandstað skútunnar í kvöld. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Skúta strandaði við Skerjafjörð, skammt út af Skildinganesi, skömmu eftir klukkan tíu í kvöld. Lögreglu og slökkviliði var gert viðvart og var kafarabíll og bátur sendur á staðinn, auk sjúkrabíla. Einnig voru björgunarsveitir kallaðar til. Engar spurnir hafa borist af slysum á fólki og ekki er vitað til þess að fólk hafi fallið útbyrðis.

Að sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins barst þangað tilkynning frá sjónarvotti í landi klukkan rúmlega tíu í kvöld um að „skúta væri í basli“.

Slökkvilið er nú að störfum við að koma skútunni til aðstoðar.

Ekki er vitað um tildrög óhappsins.

Bætt við klukkan 22.54: Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg á höfuðborgarsvæðinu var byrjað að draga skútuna skömmu fyrir klukkan 11 í kvöld. Þar var staðfest að engin slys hefðu orðið á fólki og að skemmdir á skútunni væru óverulegar.

Björgunarsveitarmenn að störfum í kvöld.
Björgunarsveitarmenn að störfum í kvöld. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert