Aukin velta á fasteignamarkaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 13. júlí til og með 19. júlí 2012 var 115 en þeir voru 91 í vikunni á undan. Þá var veltan 2,7 milljarðar.

Af þessum 115 samningum voru 86 samningar um eignir í fjölbýli, 15 samningar um sérbýli og 14 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 3.088 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,8 milljónir króna, samkvæmt yfirliti Þjóðskrár.

Á sama tíma var 11 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 169 milljónir króna og meðalupphæð á samning 15,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 83 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 113 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,6 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert