Esjan hulin þokufjalli

Esjan var hulin þykkri þoku í kvöld.
Esjan var hulin þykkri þoku í kvöld. mbl.is/Lena Lenharðsdóttir

Esjan var hulin þokufjalli í kvöld. Engu var líkara en hún væri vafin vel og vandlega inn í bómull eða þakin snjó frá fjallsrótum til efstu tinda.

Mjög hægur vindur er nú í höfuðborginni og um 12 stiga hiti.

Næsta sólarhringinn er spáð norðan 8-15 m/s, hvassast verður á Norðvestur- og Vesturlandi í fyrstu, en austanlands í nótt. Rigning eða súld verður á norðanverðu landinu, en úrkomuminna syðra.

Lægir smám saman á morgun og léttir til vestanlands, en styttir upp eystra eftir hádegi og léttir til þar annað kvöld. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast syðst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert