Fyrsta gifting samkynhneigðra sem athafnastjóri Siðmenntar stýrði átti sér stað laugardaginn 11. ágúst. Það voru þær Jana Björg Ingadóttir og Jóhanna Kristín Gísladóttir sem giftu sig með persónulegri athöfn í viðurvist sinna nánustu, að morgni dags rétt fyrir Gay Pride-gönguna.
Hörður Torfason, einn af 15 athafnastjórum Siðmenntar og handhafi húmanistaviðurkenningar félagsins 2010, sá um athöfnina en hann er upphafsmaður réttindabaráttu samkynhneigðra á Íslandi.
Í fréttatilkynningu frá Siðmennt segir félagið þessum tímamótaviðburði, enda hafi félagið alltaf stutt jafnréttisbaráttu samkynhneigðra. Frá árinu 2008 hefur Siðmennt boðið upp á allar félagslegar tímamótaathafnir fjölskylda á veraldlega vísu. „Borgaraleg ferming hefur unnið sér sterkan sess sem raunverulegur valkostur unglinga en þær hófust árið 1989. Á árinu 2013 verður því boðið upp á borgaralega fermingu í 25. sinn. Giftingum á vegum Siðmenntar hefur fjölgað stöðugt sem og nafngjöfum. Veraldlegar útfarir eru einnig góður valkostur fyrir trúlausa sem sífellt fleiri nýta sér.“
Megináherslan í athöfnum á vegum Siðmenntar er hlýleiki, mannvirðing og gleði ásamt siðrænni hugvekju í anda siðræns húmanisma. Áhersla er lögð á að fjalla um einstaklingana í athöfninni og því eru athafnirnar afar persónulegar og innilegar.