Guðmundur Rúnar til Malaví
Guðmundur Rúnar Árnason forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og fyrrverandi bæjarstjóri hefur verið ráðinn verkefnastjóri hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Malaví.
Vilhjálmur Wium er umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Malaví en Stefán Jón Hafstein sem áður gegndi starfi umdæmisstjóra hefur tekið við starfi sviðsstjóra á aðalskrifstofu Þróunarsamvinnustofnunarinnar á Íslandi.
„Það má segja að hér sé gamall draumur okkar hjóna að rætast. Við ræddum það oft á námsárunum að það væri örugglega gefandi og krefjandi að sinna störfum af þessu tagi og ég er viss um að menntun, starfsreynsla og lífsreynsla eiga eftir að nýtast vel við þau krefjandi verkefni sem framundan eru. Þegar starfið var auglýst síðastliðið vor dró það strax að sér athygli okkar. Ég er mjög spenntur og það á við um alla fjölskylduna, " segir Guðmundur Rúnar sem heldur til Malaví ásamt fjölskyldu sinni í næsta mánuði.
Meginverkefni hans verður að styðja við héraðsstjórn Mangochi héraðs í suðurhluta Malaví þar sem Þróunarsamvinnustofnun styrkir héraðið í lýðheilsu, vatns- og menntamálum, auk stjórnsýslu.
Guðmundur Rúnar er fæddur 1958, sonur Ágústu Haraldsdóttur og Árna Guðmundssonar. Hann er kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur, félagsfræðingi. Með þeim til Malaví fara yngstu dæturnar tvær, Ágústa Mithila 13 ára og Þórdís Timila, 11 ára.
Guðmundur Rúnar lauk stúdentsprófi frá Flensborg 1978 og BA-prófi í stjórnmálafræði frá HÍ árið 1985. Ári síðar lauk Guðmundur Rúnar meistaraprófi í stjórnmálafræði frá London School of Economics og doktorsprófi frá sama skóla vorið 1991. Guðmundur hefur stundað háskólakennslu og rannsóknir í félagsvísindum. Hann var ritstjóri Vinnunnar og upplýsingafulltrúi ASÍ í áratug. Þá var hann varabæjarfulltrúi kjörtímabilið 1998-2002 og bæjarfulltrúi síðan. Hann hefur m.a. setið í fjölmörgum nefndum og gegndi starfi bæjarstjóra í Hafnarfirði á árunum 2010 til 2012.
Capacent Gallup sá um ráðningarferlið.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Þorsteinsson:
Guðmundur Rúnar til Malaví, Ingibjörg Sólrún til Kabúl og .....
Innlent »
- Kennarar semja
- Tvær bílveltur í Ísafjarðardjúpi
- Hvalnesbirnan feit og fín
- Hafna meintu vanhæfi Ásmundar
- „Við erum að tala saman“
- Slíkur atvinnurógur er óviðunandi
- „Við höfum ekkert að fela“
- Geta náð saman um ýmislegt
- Jón Valur ákærður fyrir hatursorðræðu
- Biður íslenska neytendur afsökunar
- Vissu ekki af málinu
- Eldur á Njálsgötu
- Vonandi að þokast í rétta átt
- Hugsaðu áður en þú kaupir
- Bjarni og Katrín funda í dag
- Leigja út óíbúðarhæft húsnæði
- Bændasamtökin harma Brúneggja-málið
- „Agenda“ RÚV og „góða fólksins“
- Telur Bjarna vera að ræða við Katrínu
- Óþolandi að menn hagi sér svona
- Eggjakast á samfélagsmiðlum
- 200 börn deyja á dag
- Þingflokkur sjálfstæðismanna fundar
- Hætt að selja Brúnegg
- Hálka víða um land
- Boðið að skoða hvali í myrkri
- Aukin lyfjanotkun veldur áhyggjum
- Hálkublettir á Reykjanesbrautinni
- Snjór víkur fyrir rigningu
- Grunaður um fjárdrátt
Mánudagur, 28.11.2016
- Krónan tekur eggin líka úr sölu
- Flutt með þyrlu eftir bílveltu
- Melabúðin tekur eggin úr sölu
- Stuttur tími til stefnu
- Aldrei verið vistvæn framleiðsla
- Meirihlutasamstarf í Fjallabyggð
- Alveg herramannsmatur
- Konan lögð inn á almenna deild
- Að segja sögu með myndum og orðum
- „Svikalogn“ í grónum hverfum
- Með 85% af launum grunnskólakennara
- Ætla að ganga út á hádegi á miðvikudag
- Baráttugleði á samstöðufundi
- Haga seglum eftir hagnaðarvoninni
- „Eins og logandi skógur í kring“
- Árekstur skammt frá Skeifunni
- Greiða fjölmiðlum fyrir umfjöllun
- Telur Brúnegg hafa blekkt neytendur
- Búast má við hálku í kvöld
- Réttarstaða fjölskyldunnar óbreytt
- Tilefni til að skoða lög um heilbrigðisskrá
- Bakki og framkvæmdir þar
- Alþingiskosningar 2016
- Mengun frá kísilverksmiðjunni í Helguvík
- Kjaradeila kennara
- Brúnegg


