Skattarnir til Færeyja

Kaupskipin eru í stöðugum ferðum á milli Íslands og Evrópu. …
Kaupskipin eru í stöðugum ferðum á milli Íslands og Evrópu. Fjórir fossar eru á vegum Eimskips og tvö fell á vegum Samskipa. mbl.is/Ómar

Þótt íslenskir sjómenn skipi allar stöður um borð í fossum og fellum sem eru í föstum áætlunarsiglingum á milli Íslands og Evrópu teljast þeir færeyskir launþegar og greiða skatta sína í Færeyjum.

Eimskip skráir skip sín í Antígva og Barbúda í Karíbahafi og skip Samskipa eru á Alþjóðlegri færeyskri skipaskrá (FAS). Bæði fyrirtækin eru með dótturfélög í Færeyjum og nýta sér ívilnunarkerfi sem þar er boðið upp á fyrir kaupskipaútgerðir.

Áhafnirnar greiða 35% flatan tekjuskatt í Færeyjum en skipafélögin fá 28% hans til baka í gegnum alþjóðlegu skipaskrána. Launakostnaður útgerðanna er því niðurgreiddur en færeyski landssjóðurinn heldur eftir 7% skattgreiðslnanna og fær einhverjar tekjur til viðbótar af skráningu skipa sem annars væru skráð annars staðar.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að lög sem samþykkt hafa verið um íslenska alþjóðlega skipaskrá hafa ekki virkað.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert