Aldraðir og fatlaðir sjaldséðir

Laugavegur er nú lokaður að hluta.
Laugavegur er nú lokaður að hluta. mbl.is/Júlíus

Tilraun borgaryfirvalda til lokunar hluta Laugavegar hefur gefist afar illa, að mati Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg. Víða sé samdráttur í verslun milli ára og aldraðir og fatlaðir orðnir sjaldséðir viðskiptavinir.

Samtökin sendu frá sér ályktun í morgun þar sem þau segjast treysta því að ekki verði gerðar fleiri tilraunir til að loka götunni í ljósi þess hvernig tekist hefur til. „Umferð bifreiða um Laugaveginn er afar hæg og ógnar engum. Hins vegar getur lokun götunnar skapað stórhættu í nálægum íbúðahverfum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert