Katrín fjármálaráðherra

Katrín Júlíusdóttir
Katrín Júlíusdóttir Ernir Eyjólfsson

Katrín Júlíusdóttir mun taka við embætti fjármálaráðherra 1. október nk. Oddný Harðardóttir, sem gegnt hefur embættinu, hverfur hins vegar úr ríkisstjórn. Þetta kom fram á þingflokksfundi Samfylkingarinnar í morgun.

Þingflokksfundurinn hófst kl. 8.30 en þar kynnti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tillögu sína að ráðherrabreytingum. Klukkan tíu hefst svo flokksstjórnarfundur flokksins þar sem forsætisráðherra heldur ávarp og kynnir breytingarnar opinberlega.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert