Lúðvík stefnir á efstu sæti

Lúðvík Geirsson.
Lúðvík Geirsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Lúðvík Geirsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjaneskjördæmi, stefnir á eitt af efstu sætunum í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir komandi alþingiskosningar. „Það er ætlan mín að bjóða mig fram í eitt af efstu sætum framboðslistans,“ segir Lúðvík.

Þetta segir hann í viðtali í nýjasta tölublaði blaðsins Hafnarfjörður, Álftanes, Vogar sem kemur út í dag.

Forval eða prófkjör Samfylkingarinnar fyrir alþingiskosningarnar vorið 2013 verður að öllum líkindum í byrjun nóvember

Í viðtalinu kemur fram að Lúðvík, sem er fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, muni taka sæti í bæjarstjórn þegar Guðmundur Rúnar Árnason, sem einnig er fyrrverandi bæjarstjóri, hverfur til annarra starfa í Afríku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert