Áfram slæmt veður og víða ófært

Slæmt veðurútlit er það sem eftir er dags.
Slæmt veðurútlit er það sem eftir er dags. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Veður mun áfram haldast slæmt meira og minna í allan dag, með norðanátt 15-22 m/s. Mikil úrkoma er norðanlands og svo verður fram á kvöld. Gera má ráð fyrir snjó og sums staðar talsverðri ofankomu ofan 200-300 metra hæðar og krapa í 100-200 metra hæð. Ófært er víða um land.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Þetta á einkum við um fjallvegina norðanlands allt austur á Möðrudalsöræfi, en einnig verður snjófok vestar s.s. á Holtavörðuheiði og Steingrímsfjarðarheiði.

Þá er reiknað með snörpum vindhviðum yfir 30 m/s undir Ingólfsfjalli fram á miðjan dag og vestan til undir Eyjafjöllum a.m.k. fram á kvöld. Einnig sunnan undir Vatnajökli frá Kvískerjum austur í Hornafjörð fram eftir degi.

Á Suðausturlandi er varað við snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum og í Öræfum. Sandfok er á Mýrdalssandi og Skeiðarársandi og á Austurlandi er krapi og hálkublettir á Biskupshálsi og Möðrudalsöræfum.

Ófært víða um land

Á Norðausturlandi er ófært og óveður á Hólasandi, Mývatnsöræfum og Dettifossvegi og þar er ekkert ferðaveður. Þungfært og óveður er á Mývatnsheiði. Ófært og stórhríð er á Víkurskarði. Óveður og krapi er á Ólafsfjarðarmúla. Krapi er á Fljótsheiði, Ljósavatnsskarði og í Dalsmynni.  Krapi er á Hófaskarði og Hálsum.

Á Norðurlandi er ófært og stórhríð á Vatnsskarði og ekkert ferðaveður, hálkublettir,  krapi og óveður er á Siglufjarðarvegi og ekkert ferðaveður. Krapi er komin á vegi víða í Skagafirði. Snjóþekja og stórhríð er á Öxnadalsheiði.

Snjóþekja og óveður er á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum eru hálkublettir og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.

Leiðin frá Lokinhamradal að Stapadal í Arnarfirði er nú ófær í fjörunni við Skútabjörg og ekki fær neinum bílum a.m.k. til næsta vors.

Þá er orðið ófært um hálendisvegi norðan jökla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert