Segir dæmda menn krefjast aðgerða gegn Íslendingum

Friðrik Arngrímsson.
Friðrik Arngrímsson. mbl.is

„Það eina sem Evrópusambandinu er heimilt að gera er að beita löndunarbanni á íslensk fiskiskip sem eru á makrílveiðum en allar aðgerðir umfram þær, s.s. innflutningsbann eða slíkt, eru skýrt brot gegn EES-samningnum,“ segir Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í viðtali á heimasíðu samtakanna.

Tilskipunin sem Evrópuþingið samþykkti er almenns eðlis og beinist því ekki eingöngu gegn Íslendingum, heldur öllum ríkjum sem talin eru stunda ofveiði á sameiginlegum fiskstofnum. Þá tekur hún eingöngu til þeirra tegunda sem talið er að séu ofveiddar og annars afla sem veiddur er í sömu veiðiferð.

„Þá er fráleitt að tala um að Íslendingar stundi ofveiði þar sem Norðmenn og ESB veiða 90% af ráðlögðum kvóta. Ísland á allan rétt til veiða á stofnum innan íslensku lögsögunnar. Við höfum ítrekað lagt fram tillögur um að allir dragi úr veiðum svo ekki verði veitt umfram ráðgjöf. En þá þurfum við auðvitað að fá sanngjarnan hlut eins og aðrir. Þá er mikilvægt að það fari fram endurmat á makrílstofninum því gera má ráð fyrir að stofninn sé mun stærri en mælingar vísindamanna benda til,“ segir Friðrik.

„Vitað er að Evrópusambandið og Noregur stunduðu stórfelldar veiðar umfram útgefinn kvóta og var aflanum landað framhjá vigt. Þetta hefur skekkt mynd vísindamanna af stofnstærðinni og þarf að endurskoða. Skotar og Írar, sem voru einna stórtækastir í þessari svörtu atvinnustarfsemi, hafa nú verið dæmdir til að greiða háar sektir fyrir þetta athæfi. Þeir fara nú fremstir í flokki þeirra sem krefjast ólögmætra aðgerða gegn veiðum okkar Íslendinga,“ segir Friðrik á heimasíðu LÍÚ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert