Þekkir þú manninn á myndinni?

Þessi mynd var tekin í Herjólfsdal kl. 05.35 mánudaginn 6. …
Þessi mynd var tekin í Herjólfsdal kl. 05.35 mánudaginn 6. ágúst. Óskað er upplýsinga um manninn í bláu yfirhöfninni. Af vef lögreglunnar

Lögreglan á Selfossi biður mann þann sem sést á meðfylgandi mynd, klæddur blárri yfirhöfn og dökkum buxum, í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum mánudaginn 6. ágúst síðastliðinn kl. 05.35, að hafa samband í síma 480 1010. Einnig leitar lögreglan til almennings og biður þá sem telja sig geta upplýst hver þessi maður er að koma þeim upplýsingum til lögreglu. 

Maður þessi er talinn búa yfir upplýsingum sem gagnast gætu við rannsókn máls, segir í frétt á vef lögreglunnar.

Myndin var tekin um verslunarmannahelgina en lögreglan á Selfossi rannsakar nú m.a. nauðgunarmál sem kom upp á hátíðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert