„Það er ríkisstjórnin og hennar stefna sem býr til ákveðnar forsendur fyrir aðila vinnumarkaðarins til þess að semja á og fyrir allt samfélagið til þess að starfa á. Ef þessar forsendur sem ríkisstjórnin skapaði væru í lagi þá væri ekki þörf á þessari miklu aðkomu hennar.“
Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við mbl.is spurður út í þau ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í morgun að skoða þyrfti alvarlega að draga úr aðkomu stjórnvalda að gerð kjarasamninga í ljósi stóryrða og svikabrigsla þeirra í garð ríkisstjórnarinnar.
Vilhjálmur bendir á að tvisvar sinnum hafi komið til samninga á milli aðila vinnumarkaðarins í tíð núverandi ríkisstjórnar með aðkomu hennar. Fyrst var um að ræða svonefndan stöðugleikasáttmála og síðan kjarasamninga sem undirritaðir voru 5. maí síðastliðinn.
„Ég tel að það hafi verið ákveðin nauðsyn vegna ríkisstjórnarinnar sjálfrar og hennar verka og verkleysis og hennar stefna og stefnuleysi sem sköpuðu þörfina fyrir aðkomu hennar. Æskilegast væri að stefna ríkisstjórnarinnar væri skýr og væri í takt við það hvernig atvinnulífið og vinnandi fólk gæti starfað og náð árangri. Þá þyrfti ekki þessa aðkomu ríkisstjórnarinnar,“ segir Vilhjálmur.