Fjórir skjálftar yfir 4 að stærð

Kortið sýnir upptök jarðkjálfta á tímabilinu 14.-21. september 2012. Jarðskjálftar …
Kortið sýnir upptök jarðkjálfta á tímabilinu 14.-21. september 2012. Jarðskjálftar eru táknaðir með rauðum hringjum. Upptök jarðskjálfta yfir 4 að stærð eru táknuð með svörtum stjörnum. Sveru örvarnar ofarlega á kortinu sýna rekstefnuna og örvarnar við Flateyjarskaga sýna hreyfistefnuna um Húsavíkur-Flateyjarmisgengið. Einnig eru sýnd nokkur önnur misgengi á svæðinu með svörtum línum.

Talsverð jarðskjálftavirkni syðst í Eyjafjarðarál úti fyrir Norðurlandi hefur staðið yfir með hléum frá 14. september. Fram til dagsins í dag hafa mælst fjórir jarðskjálftar yfir 4 að stærð. Tveir þeirra urðu þann 19. september kl. 07:57 og 08:28 og tveir í gær 20. september kl. 09:27 og 19:42. Þeir hafa allir fundist greinilega á Siglufirði og Ólafsfirði. Sá fyrsti fannst einnig á Sauðárkróki og sá síðasti á Dalvík, Akureyri og Húsavík. Einnig hafa mælst nokkrir skjálftar yfir 3 að stærð en í allt hafa á fimmta hundrað jarðskjálftar verið staðsettir. Þetta kemur fram í frétt á vef Veðurstofunnar.

Eyjafjarðaráll liggur milli Húsavíkur-Flateyjarmisgengisins og sigdals suður af Kolbeinseyjarhrygg. Húsavíkur-Flateyjarmisgengið er hluti af Tjörnesbrotabeltinu sem brúar bilið milli norðurgosbeltisins og Kolbeinseyjarhryggs. Jarðskjálftar eru ekki óalgengir á þessu svæði.

Skjálftaraðir hliðstæðar þeirri sem nú er í gangi urðu árin 1996 og 2004. Þær stóðu í marga daga og jarðskjálftar yfir 4 að stærð mældust. Upptök skjálftavirkninnar sem nú stendur yfir er ekki á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu og ekkert bendir til þess að svo stöddu að hún færist þangað. Hvorki er hægt að segja fyrir um hve lengi þessi skjálftaröð muni standa yfir né útiloka frekari skjálfta af stærð 4 eða meira.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert