Refur komst á ísbrú til Íslands

Heimskautarefurinn komst á lagnaðarís til Íslands á „litlu“ ísöldinni á …
Heimskautarefurinn komst á lagnaðarís til Íslands á „litlu“ ísöldinni á 16. til 19. öld.

Vísindamenn við Durham-háskólann í Englandi segja að „lítil ísöld“ á tímabilinu frá 16. til 19. aldarhafi gert heimskautarefnum kleift að helga sér land á Íslandi. Hafi á því kuldaskeiði myndast ísbrú til landsins.

Ísbrúin gerði refnum kleift að sækja til Íslands frá mismunandi heimskautasvæðum, svo sem frá Norður-Ameríku, Grænlandi og Rússlandi. Rannsókn vísindamannanna frá Durham á Íslandi og víðar þykir staðfesta mikilvægi hafíss við útbreiðslu og viðhalds stofna heimskautarefs á pólsvæðum.

Sömuleiðis er talið að aðrar dýrategundir hafi getað fært sig milli svæða nyrst í Evrópu fyrir tilstilli ísmyndunarinnar.

Fjölþjóðleg sveit vísindamanna undir forystu háskólans í Durham í Englandi gróf upp forn bein og leifar heimskautarefa á Íslandi, sem við aldursákvörðun reyndust frá níundu til tólftu aldar. Rannsókn á erfðaefni úr þeim voru borin saman við DNA úr nútímaref.

Niðurstaðan var sú, að genasamsetning refanna á Íslandi til forna var ætíð hin sama en núverandi refastofnar á Íslandi búi yfir fimm afdráttarlausum genamengjum. Líklegasta skýringin á því, segja vísindamennirnir, er blöndun vegna búsetuflutninga eftir lagnaðarísnum sem brúaði heimskautasvæðin á litlu ísöldinni.        

„Jafnvel í dag tekur heimskautarefur að staðaldri á sig mörg hundruð kílómetra ferðalög eftir ís. Og þegar ísbrúin myndaðist var för hans um Norður-Atlantshafið til Íslands leikur einn,  en við það jókst erfðafræðilegur fjölbreytileiki refasamfélagsins á Íslandi,“ segir Greger Larson við fornleifadeild háskólans í Durham.

„Lífið finnur sér alltaf farveg,“ sagði dr. Ian Malcolm í Jurassic Park. Í þessu tilviki, eftir að Litla ísöldin skall á, beið heimskautarefurinn ekki boðanna og lagði undir sig Ísland,“ bætir Larson við. Hann segir að möguleikar til dýraflutninga hafi dregist verulega saman á tuttugustu öldinni vegna hlýnunar í andrúmsloftinu.

Sjá umfjöllun um íslenska refinn í umfjöllun um Melrakkasetrið í Morgunblaðinu í dag.

Grafið eftir refabeinum við Skútustaði í Mývatnssveit sumarið 2010. Í …
Grafið eftir refabeinum við Skútustaði í Mývatnssveit sumarið 2010. Í miðjunni er Þóra Pétursdóttir fornleifafræðingur en hinar konurnar tvær eru doktorsnemar. mbl.is/Thomas McGovern
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert