Björgvin gefur áfram kost á sér

Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður.
Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður. mbl.is/Ómar Óskarsson

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi viðskiptaráðherra, hyggst bjóða sig fram til áframhaldandi þingsetu fyrir Samfylkinguna fyrir þingkosningarnar næsta vor. Þetta staðfestir hann í samtali við mbl.is en Björgvin er oddviti flokksins í Suðurkjördæmi.

Samfylkingin fékk þrjá þingmenn í kjördæminu í síðustu kosningum en auk Björgvins eru það Oddný G. Harðardóttir efnahags- og fjármálaráðherra og Róbert Marshall.

Ekki liggur fyrir hvort Oddný hyggst gefa áfram kost á sér en Róbert tilkynnti fyrr á þessu ári að hann ætlaði að bjóða sig fram í Reykjavík fyrir næstu kosningar. Í samtali við mbl.is segist Róbert hins vegar ekki hafa tekið ákvörðun um það í hvaða sæti hann ætli að bjóða sig fram.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert