Frosti vill leiða Framsókn í borginni

Frosti Sigurjónsson.
Frosti Sigurjónsson.

Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Nýherja og stjórnarformaður CCP, hefur ákveðið að gefa kost á sér til að leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum.

Í tilkynningu frá Frosta segir að á undanförnum misserum hafi Framsókn lagt fram skynsamlegar tillögur í lykilmálum og sýnt staðfestu í baráttu fyrir þeim.

„Framsóknarmenn hafa einnig sýnt í verki að flokkurinn er opinn fyrir nýjum hugmyndum og nýju fólki. Sú endurnýjun sem átt hefur sér stað innan Framsóknarflokksins er mikilvægur grunnur sem ég vil taka þátt í að byggja á,“ segir í tilkynningunni.

Frosti er 49 ára gamall. Hann er stjórnarmaður í Heimssýn, samtökum gegn aðild að ESB, og einnig meðlimur í Advice-hópnum sem kynnti mótrök gegn Icesave III. Hann er talsmaður átaksins Betra peningakerfi sem kynnir leiðir til úrbóta í peningamálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert