Brynjar Níelsson gefur kost á sér

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður hefur ákveðið að gefa kost á sér  í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar. Hann sækist eftir 3. sæti.

„Með þessari ákvörðun er ég að svara áskorunum og kalli fjölda fólks, sem hvatt hefur mig eindregið til stjórnmálaþátttöku og vísað til  þess að þörf sé á nýju fólki í fremstu röð,“ segir í yfirlýsingu frá Brynjari.

„Þótt ég hafi ekki áður komið að pólitísku starfi innan Sjálfstæðisflokksins hafa skoðanir mína og flokksins jafnan farið saman í meginatriðum og mér er hugleikin baráttan fyrir réttarríkinu, frelsi einstaklingsins til orða og athafna, sem og hið opna frjálsa þjóðfélag. Að þessum grunnstoðum borgaralegs samfélags er vegið freklega nú á tímum,“ segir í yfirlýsingunni.

Brynjar, sem var einn umsækjenda um tvö embætti hæstaréttardómara sem auglýst voru 5. júlí, hefur dregið umsókn sína um embættið til baka, að því er fram kemur á vef innanríkisráðuneytisins.

„Við blasir að mikilvæg verkefni á öllum sviðum íslensks samfélags bíða næsta kjörtímabils, enda hefur hik, úrræðaleysi og óeining einkennt starf núverandi stjórnarflokka. Vil ég því leita eftir stuðningi sjálfstæðisfólks til að leggja lóð mín á vogarskálar aukinnar verðmætasköpunar og nýrrar sóknar fyrir land og lýð.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert