Festi skurðgröfu í miðri á

Grafan föst úti í miðri Jökulsá.
Grafan föst úti í miðri Jökulsá. Ljósmynd/Landsbjörg/Nikulás

Björgunarsveitin Hérað á Egilsstöðum var kölluð út nú í hádeginu til að sækja bílstjóra gröfu sem festist í Jökulsá í Fljótsdal. Sveitin fór á staðinn með bát og gekk fljótt og vel að sækja manninn. Ekkert amaði að honum þegar að var komið.

Nú er verið að bíða eftir stórvirkum vinnuvélum til að ná gröfunni upp úr ánni. Sveitin er á staðnum og mun aðstoða við að koma taug í hana, segir í tilkynningu frá Landsbjörg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert