Hafa ekki rætt saman

Höskuldur Þórhallsson
Höskuldur Þórhallsson mbl.is

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Höskuldur Þórhallsson, þingmaður flokksins, hafa ekki enn farið yfir þá stöðu sem komin er upp í Norðausturkjördæmi.

Báðir setja þeir stefnuna á að fara fyrir framboðslista flokksins í kjördæminu. Í Vikudegi er haft eftir Höskuldi að þeir Sigmundur Davíð hafi ekki náð að hittast, en geri það væntanlega á næstu dögum.

Í Vikudegi segir að svo virðist sem Höskuldur njóti víðtæks stuðnings á Norðurlandi, sérstaklega á Eyjafjarðarsvæðinu, en stuðningur við Höskuld sé ekki eins afgerandi  á Austurlandi.

Höskuldur hefur lýst því yfir að ekki komi til greina að gefa fyrsta sætið eftir til Sigmundar Davíðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert