Stefnir á 2. sætið í NA-kjördæmi

Erna Indriðadóttir gefur kost á sér í annað sætið á …
Erna Indriðadóttir gefur kost á sér í annað sætið á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. mbl.is

Erna Indriðadóttir, stjórnsýslufræðingur og starfsmaður Alcoa Fjarðaáls, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sætið á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, í prófkjöri flokksins sem fram fer dagana 9. og 10. nóvember.

Erna var í tíunda sæti á lista Samfylkingarinnar í  kjördæminu í síðustu alþingiskosningum. Hún starfaði sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu í rúm 20 ár, þar af sem deildarstjóri Ríkisútvarpsins á Akureyri í sex ár, en hefur starfað sem upplýsingafulltrúi Fjarðaáls á Reyðarfirði frá árinu 2005.

Erna telur brýnt að endurreisn landsins verði haldið áfram á grundvelli jafnaðarstefnunnar.  Hún hefur áhuga á að beita sér í atvinnumálum og byggðamálum og er þeirrar skoðunar að ljúka eigi aðildarviðræðunum við Evrópusambandið. 

Hún telur að halda eigi áfram sjálfbærri nýtingu orkulinda landsins í samræmi við rammaáætlun og vill að fólk sem flytur til starfa á landsbyggðinni fái tímabundinn skattaafslátt. 

Þá vill Erna  leggja sitt af mörkum til að bæta umræðuhefð á Alþingi og stuðla að faglegri vinnubrögðum á þeim vettvangi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert