Engin ákvörðun um fyrirliðabandið

Aron Einar Gunnarsson
Aron Einar Gunnarsson Sakis Savvides

Geir Þorsteinsson formaður KSÍ segir að ekki verði tekin ákvörðun um það hvort Aron Einar Gunnarsson muni halda fyrirliðabandi sínu hjá knattspyrnulandsliði Íslands.

„Við hyggjumst klára þennan leik á móti Sviss og svo í kjölfarið munum við fara yfir það hvað við gerum í þessu máli,“ segir Geir.

Aron lét þau óheppilegu ummæli falla fyrir leik á móti Albaníu að þar í landi byggju „glæpamenn“. Þau vöktu hörð viðbrögð, bæði hér á landi og í Albaníu. Aron baðst afsökunar á ummælum sínum í yfirlýsingu eftir leikinn. Jafnframt bað Geir forseta knattspyrnusambands Albaníu og þingmann í landinu afsökunar.

„Ég ræddi málin við Lars (Lagerbäck), en við eigum eftir að klára það mál endanlega,“ segir Geir. 

Grétar Rafn Steinsson verður fyrirliði Íslands á móti Sviss á þriðjudag, en Aron Einar Gunnarsson er í leikbanni vegna of margra áminninga í undankeppni HM.

Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri KSÍ.
Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri KSÍ. RAX / Ragnar Axelsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert