Peningamyndun og útlánastarfsemi verði aðskilin

Lilja Mósesdóttir og ásamt Birgi Erni Guðjónssuni nýkjörnum formanni Samstöðu.
Lilja Mósesdóttir og ásamt Birgi Erni Guðjónssuni nýkjörnum formanni Samstöðu.

Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar, vill að skipuð verði nefnd sérfræðinga sem verði falið að kanna hvernig hægt sé að tryggja aðskilnað peningamyndunar og útlánastarfsemi bankakerfisins með því að afnema heimildir bankanna til útlána umfram lausar innistæður.

Í ályktun frá landsfundi Samstöðu, sem Lilja Mósesdóttir flutti, er bent á að í núverandi peningakerfi sé innlánsstofnunum heimilt að búa til ígildi peninga með útlánum umfram innstæður. Í raun sé megnið af þeim peningum sem notaðir eru í almennum viðskiptum rafræn innlán sem einkabankar hafa búið til með útlánum umfram innstæður.

„Aðskilnaður peningamyndunar og útlánastarfsemi bankakerfisins fari þannig fram að lögum verði breytt til að heimila Seðlabanka einum að búa til peninga hvort sem peningarnir eru úr pappír, málmi eða á rafrænu formi. Með þessari lagabreytingu færast hreinar vaxtekjur (vaxtatekjur af útlánum umfram vaxtagjöld af innlánum) að miklu leyti til Seðlabankans sem bankar hafa fram til þessa hagnast af.  Aðskilnaðurinn mun gefa Seðlabankanum betri stjórn á peningamagni í umferð og koma í veg fyrir að bankar búi til eignabólur með útlánastarfsemi sinni,“ segir í ályktun Samstöðu.

Mikilvægt er að mati Samstöðu að skoða kosti og galla slíks fyrirkomulags hér á landi til að koma í veg fyrir annað bankahrun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert