Stjórnvöld afþakki loftrýmisgæslu

Samtök hernaðarandstæðinga leggja til að stjórnvöld afþakki loftrýmisgæslu NATO í íslenskri lofthelgi árið 2013, vegna dráps á almennum borgurum í Afganistan. Um síðustu helgi féllu þrjú börn í loftárás í Helmand héraði og benda samtökin á að slíkar fregnir séu reglubundnar úr þessum heimshluta, einkum með aukinni notkun fjarstýrðra drápsvélmenna í Afganistan og Pakistan.

„Af þessu tilefni gera Samtök hernaðarandstæðinga það að tillögu sinni að stjórnvöld afþakki loftrýmisgæslu NATO í íslenskri lofthelgi árið 2013 og noti þær 30 milljónir sem annars hefðu farið í að niðurgreiða þotuæfingar NATO-herja í að greiða bætur til aðstandenda þeirra afgönsku og pakistönsku borgara sem drepnir hafa verið á okkar vegum,“ segir í yfirlýsingu frá Samtökum herstöðvarandstæðinga. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert