Tillaga um afnám verðtryggingar felld

Þing ASÍ lýkur á Nordica hóteli í dag.
Þing ASÍ lýkur á Nordica hóteli í dag. Morgunblaðið/Styrmir Kári

Þing ASÍ felldi í dag tillögu um afnám verðtryggingar. 103 studdu tillöguna eða 46% atkvæða, en 121 greiddu atkvæði á móti eða 54%.

Miklar umræður urðu á þingi ASÍ um verðtryggingu. Þingfulltrúar deildu um hvort verðtryggðin væri meinsemd sem hefði leitt fjölda heimila í gjaldþrot eða hvort orsakanna væri að leita annars staðar.

Þeir sem gagnrýndu verðtrygginguna lögðu fram tillögu fyrir þingið þar sem sagði: „Þing ASÍ skorar á Alþingi að afnema verðtryggingu á neytendalánum til einstaklinga og heimila enda er hér um að ræða samfélagslegt mein sem hefur leikið skuldsett heimili skelfilega á liðnum árum og áratugum. Einnig skorar þingið á Alþingi að setja lög sem mæli fyrir þak á vexti á húsnæðislán.“

Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, gagnrýndi tillöguna og sagði að tillaga um að setja þak á vexti fæli í sér að lánveitendur yrðu ekki tilbúnir til að lána ef þeir fengju ekki ávöxtun á fjármagn sitt. Afleiðingin yrði sú að til yrði ástand sem væri svipað því sem var á sjötta og sjöunda áratugnum þegar fólk þurfti að betla lán frá bankastjórum og helst að þekkja einhvern valdamann til að fá lán.

Kristján Þórður tók dæmi af óverðtryggðu láni sem stóð í 20 milljónum í ársbyrjun 2009. Verðbólgan fór upp í 18% það ár. Kristján Þórður sagði að þetta þýddi að mánaðarlegar afborganir af láninu hefðu farið úr 172 þúsund krónur í 400 þúsund. Ef lánið hefði verið verðtryggt hefðu afborganir farið úr 110 þúsund í 111 þúsund. Höfuðstóllinn hefði vissulega hækkað mikið, en hann sagðist ekki sjá hvernig fólk gæti ráðið við afborgun upp á 400 þúsund á mánuði.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, og einn tillöguflytjenda, sagði að afleiðing verðtryggðarinnar væri sú að 50% heimila á Íslandi væru tæknilega gjaldþrota. Hann sagði að verðtryggðin væri meinsemd sem verkalýðshreyfingin ætti að berjast gegn. Fjármagnseigendur væru með belti og axlabönd á meðan lántakar tækju á sig alla áhættu. Verkalýðsfélag Akraness hefur ásamt Hagsmunasamtökum heimilanna ákveðið að höfða dómsmál til að fá úr því skorið hvort verðtryggingin sé lögleg.

Birgir Már Guðmundsson, stjórnarmaður í VR, sagði rétt sem fram hefði komið í umræðum á þinginu að það væri ekki nægilegt að horfa bara á verðtrygginguna. Meinsemdin væri verðbólga og óstjórn í efnahagsmálum hér á landi. Birgir sagðist hins vegar taka undir að losna þyrfti við verðtrygginguna. Hann sagði að hún hefði leikið sig grátt og hann væri í hópi þeirra sem ættu ekki lengur neitt í húsnæði sínu.

Fríður Birna Stefánsdóttir, stjórnarmaður í VR, sagði að efnahagsstjórn í þessu landi væri „ömurleg“ og hún yrði það áfram þó að við gengjum í Evrópusambandið. Hún sagði að aðferðin við að eignast húsnæði væri að spara og leggja fyrir áður en farið væri af stað. Það gengi hvergi í heiminum að kaupa húsnæði á 100% lánum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert