Kvóta úthlutað til 49 byggðarlaga

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, hefur úthlutað 6.707 þorskígildistonna byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013. Alls er byggðakvóta úthlutað til 32 sveitarfélaga og í þeim fengu 49 byggðarlög úthlutun.

Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins. Þar segir að úthlutun byggðakvótans byggist á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2002/2003 til fiskveiðiársins 2011/2012.

Fram kemur, að hámarksúthlutun til byggðarlags sé 300 þorskígildistonn og fái sex byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun sé 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fái fjögur byggðarlög þá úthlutun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert