Vél kyrrsett vegna skulda

Vélin sem var kyrrsett í morgun
Vélin sem var kyrrsett í morgun Víkurfréttir/Hilmar Bragi

Isavia kyrrsetti í morgun Airbus A-320 flugvél tékkneska flugfélagsins Holiday Czeck Airlines vegna ógreiddra lendingargjalda á Keflavíkurflugvelli sem Iceland Express hefur ekki staðið skil á vegna flugs á vegum félagsins. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.

Iceland Express er ekki flugrekandi en endanleg ábyrgð á greiðslu lendingargjalda hvílir á flugrekanda viðkomandi flugvélar sem í þessu tilviki er tékkneska flugfélagið í samræmi við lög um loftferðir. Flugvélin verður um kyrrt á Keflavíkurflugveli þar til viðeigandi greiðslur hafa verð inntar af hendi.

Eins og kom fram í gær hefur WOW air tekið yfir allan flugrekstur og áætlunarflug Iceland Express.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert