Lögregla leysti upp kattapartí

Köttur á förnum vegi. Hann er ekki einn þeirra sem …
Köttur á förnum vegi. Hann er ekki einn þeirra sem héldu veislu í mannlausu húsi á Suðurnesjum. Valdís Þórðardóttir

Lögreglan á Suðurnesjum leysti upp gleðskap katta í mannlausu húsi í bænum um hádegisbilið í dag. Íbúar í nágrenninu höfðu séð nokkra ketti fara inn og út um glugga á húsinu, sem hefur staðið mannlaust um skeið.

Er lögregla kom á staðinn voru þar fyrir 2-3 kettir sem höfðu gert sig heimakomna og létu fara makindalega um sig á sófa sem skilinn hafði verið eftir í húsinu. Að sögn lögreglu var partíið leyst upp, köttunum vísað á dyr og öllum gluggum lokað og læst kirfilega til að koma í veg fyrir frekara veisluhald af þessu tagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert