Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um vatnsleka í fjölbýlishúsi í Gyðufelli á áttunda tímanum í kvöld. Húsráðendur í einni íbúðinni hugðust ylja sér og hækka hitann á ofnum, en þá vildi ekki betur til en þeir fóru að leka.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu varð minniháttar tjón af.