Mikið tjón í Vík í Mýrdal

Þessi bifreið fór illa í veðurofsanum í Vík í Mýrdal …
Þessi bifreið fór illa í veðurofsanum í Vík í Mýrdal í dag mbl.is/Jónas Erlendsson

Enn er vitlaust veður á Suðurlandi og að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli er ekkert ferðaveður undir Eyjafjöllum og í Mýrdal. Töluverðar skemmdir hafa orðið í óveðrinu í Vík í Mýrdal.

Björgunarsveitin Víkverji hefur haft í nægu að snúast í allan dag við að sinna útköllum.

Ekki liggur fyrir hversu mikið tjónið er en lögregla mun meta ástandið síðar í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert