Þreyttir á auglýsingaflóðinu í Ohio

Barack Obama hefur síðustu daga haldið marga fjölmenna kosningafundi. Í …
Barack Obama hefur síðustu daga haldið marga fjölmenna kosningafundi. Í gær var hann í Columbus í Ohio. Ljósmynd/Steinn Arnar Jónsson

Steinn Arnar Jónsson, sem býr í Columbus í Ohio, segir ekki laust við að íbúar í Ohio séu orðnir langþreyttir á hinu mikla auglýsingaflæði sem dunið hefur á kjósendum í ríkinu undanfarnar vikur. Forsetaframbjóðendurnir leggja mikla áherslu á að sigra í Ohio enda bendir flest til að sá sem sigri þar verði forseti Bandaríkjanna næstu fjögur árin.

Það hefur víst ekki farið fram hjá mörgum að í dag er gengið til forsetakosninga í Bandaríkjunum.  Á síðustu metrum kosningabaráttunnar hafa þeir Barack Obama og Mitt Romney eytt miklum tíma og peningum í Ohio ríki, sem er talið er geta ráðið úrslitum um hvor þeirra fer með sigur af hólmi í kosningunum.

Steinn var spurður hvernig stemmingin væri í Columbus vegna forsetakosninganna?

„Hún er bara góð, þó ekki sé laust við að menn séu orðnir langþreyttir á hinu mikla auglýsingaflæði sem dunið hefur á Ohiobúum undanfarnar vikur.  Þetta er í öllum fjölmiðlum, sjónvarpi, útvarpi, blöðum og mikið á Internetinu.  Svo taka almennir borgarar þátt í þessu líka með því að setja upp auglýsingaskilti í framgarðinum hjá sér.“ 

Sigur í Ohio skiptir miklu máli

- Hvernig stendur á því að frambjóðendur eyða svona miklu púðri í þetta ákveðna ríki?

„Ohio er eitt af fjölmennustu ríkjum Bandaríkjanna þar sem fylgi frambjóðandanna er nokkuð jafnt.  Alls eru 18 kjörmenn í boði í Ohio og því til nokkuð mikils að vinna.  Eins og staðan er í dag þá er töluvert líklegt að sá frambjóðandi sem sigri hér vinni einnig á landsvísu.  Sem dæmi um mikilvægi þess að vinna í Ohio má nefna að í öllum kosningum frá árinu 1944 hefur sá frambjóðandi sem fór með sigur af hólmi í Ohio orðið forseti, með einni undantekningu, en þeir kusu Nixon 1960 þegar Kennedy varð forseti.  Það er einnig mjög merkileg staðreynd að aldrei í sögu Bandaríkjanna hefur repúblikana tekist að verða forseti án þess að vinna í Ohio.  Sú staða er einmitt uppi á teningnum í dag.  Ef Romney tapar í Ohio er fremur ólíklegt að hann nái að vinna það upp í öðrum ríkjum.“  

- Þú varst á kosningafund hjá  Obama í gær.  Hvernig var það?

„Það var mjög gaman og sérstök upplifun.  Jafnaðist í raun á við bestu rokktónleika.  Bruce Springsteen og Jay-Z sáu um að hita mannskapinn upp ásamt ýmsum demókrötum úr Ohio sem héldu upphitunarræður.  Svo þegar Obama mætti á svið ætlaði allt um koll að keyra.  Ég þurfti að halda fyrir eyrun á syni mínum næstum allan fundinn vegna hávaða.  Obama var með fína ræðu og það var mikið fagnað, t.d. þegar hann fjallaði um árangur í heilbrigðismálum, réttindum samkynhneigðra og afturköllun herliðs frá Írak og Afganistan.“

- Þú hefur farið á fleiri kosningafundi.  Hvernig var þessi í samanburði þá fundi?

„Já, ég sá Kerry og Edwards 2004 og Obama 2008.  Það voru fínir fundir, en fundurinn í gær var töluvert fjölmennari og þar að auki innanhúss, í stórri hokkíhöll og því var meiri hávaði og stemming.  Allur salurinn tók bylgjur, söng og hvaðeina.“

- Hvernig hefurðu upplifað þessar kosningar í samanburði við aðrar?

„Þessar kosningar snúast mun meira um innanríkismál en fyrri kosningar.  Menn hafa áhyggjur af efnahagnum og hvernig beri að rétta úr honum.  Árið 2004 og 2008 var mest tekist á um utanríkismálin og stríðin í Miðausturlöndum.“

- Hvað á svo að gera á kjördag?

Fyrsta áhyggjuefni mitt verður að koma nýjum hugbúnaði í loftið sem við erum á síðasta snúningi með í vinnunni.  Svo mætum við saman fjölskyldan á kjörstað.  Ætli ég kaupi ekki einhvern vel valinn bjór og liggi svo yfir tölunum þegar þær fara að birtast.  Vonandi verður tilefni til að skála í lok kvölds.“

Stuðningsmenn Obama reyna með margvíslegum hætti að fá kjósendur til …
Stuðningsmenn Obama reyna með margvíslegum hætti að fá kjósendur til að styðja hann. Ljósmynd/Steinn Arnar Jónsson
Ungir sem aldnir mættu á kosningafundinn til að sjá og …
Ungir sem aldnir mættu á kosningafundinn til að sjá og hlusta á Obama. Ljósmynd/ Steinn Arnar Jónsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert