ASÍ leggst gegn fríverslunarsamningi við Kólumbíu

ASÍ hefur í umsögn sinni til Alþingis lagst gegn því að að EFTA fullgildi fríverslunarsamning við Kólumbíu og landbúnaðarsamning Íslands og Kólumbíu sem nú liggja fyrir Alþingi. Mannréttindabrot gegn verkalýðsforingjum og meðlimum stéttarfélaga eru daglegt brauð í Kólumbíu þar sem réttindi launafólks eru fótum troðin. Bara á þessu ári hafa 35 verkalýðsforingjar verið myrtir í Kólumbíu, segir í frétt á vef ASÍ.

 Frá 1986 hafa tæplega 3000 fulltrúar kólumbískra verkalýðsfélaga verið myrtir, þarf af tæplega 800 formenn verkalýðsfélaga. Lítið er aðhafst vegna þessa ofbeldis sem ýmist er framið af stjórnvöldum sjálfum eða skipulögðum glæpasamtökum gegn greiðslu frá þeim sem telja hagsmunum sínum ógnað af starfsemi verkalýðsfélaga.

 Ísland sem kýs að vera kyndilberi mannréttinda á alþjóðavettvangi getur ekki verið aðili að samningum um frjáls viðskipti með vöru og þjónustu  sem sprettur úr jarðvegi grófra og viðvarandi mannréttindabrota gegn launafólki og frjálsri verkalýðshreyfingu.  Slíkir samningar styðja ríkjandi ástand í stað þess að vinna gegn því. Þess vegna leggst ASÍ eindregið gegn staðfestingu þessara samninga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert