Stór sigur Árna Páls

Árni Páll Árnason.
Árni Páll Árnason. mbl.is/Eggert

Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segir Árna Pál Árnason hafa styrkt stöðu sína mikið innan Samfylkingarinnar eftir að hann hafði betur en Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra í baráttu um 1. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi.

„Hann hafði verið settur á hliðarlínuna af forystu flokksins eftir að hann var settur úr embætti ráðherra. Kannski hefði mátt ætla að hann hefði minni stuðning í kjördæminu fyrir vikið. Annað kom á daginn og hann lagði Katrínu Júlíusdóttur sem er fjármálaráðherra og hefur haft stuðning forystunnar í flokknum,“ segir Stefanía og bætir við. „Sigur hans er kannski ekki stór. Hann fékk 49% en hún 43% og þetta var ekkert burst. En sigurinn er stór ef tekið er tillit til þess að hann var settur af sem ráðherra.“ 

„Þessi niðurstaða gefur það til kynna að hann eigi ágæta möguleika á því að verða formaður flokksins.“

Stefanía segir að með þessu hafi sjónarmið Árna um að halda sig nærri miðju, í stað þess að „loka sig af“ á vinstri vængnum, hlotið hjómgrunn. Hann hafi talað fyrir markaðssjónarmiðum.

„Málefnalega hefur maður kannski ekki orðið var við mikinn ágreining á milli Árna Páls og Katrínar, en hann hefur talað um að flokkurinn megi ekki loka sig af með Vinstri grænum og loka fyrir aðra kosti,“ segir Stefanía.

Hún segir að ekki sé gott að finna einhvern sem geti ógnað Árna Páli í formannsslag í flokknum. Helst sé það Katrín sem margir hafi séð sem vonarstjörnu flokksins. „Hann virðist vera í ágætum málum því það var helst talað um Katrínu sem vonarstjörnu í flokknum. Hins vegar á eftir að koma í ljós hvort hún muni láta reyna á stuðning í formannsslagnum,“ segir Stefanía.

  

Stefanía Óskarsdóttir.
Stefanía Óskarsdóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert