Byrjað að hvessa hressilega

Mjög er byrjað að hvessa á suðvesturhorninu en spáð er miklu roki fyrir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hefur ekki verið leitað til þeirra vegna veðurs enn sem komið er af íbúum á höfuðborgarsvæðinu. Foreldrar eru beðnir um að fylgja börnum sínum í skóla.

Búast má við mjög hvössum vindhviðum við fjöll fram eftir degi, einkum S- og V-lands. Lægir mikið síðdegis. Spáð er talsverðri eða mikilli rigningu á SA-verðu landinu í dag.

Slökkviliðið sendi frá sér viðvörun í gærkvöldi þar sem veðurspáin fyrir höfuðborgarsvæðið  bendir til að börn gætu átt erfitt með að komast til skóla. Grunnskólar verða opnir en röskun gæti orðið á starfi þeirra. Foreldrar eru því beðnir að fylgjast vel með veðurspám og tilkynningum í fjölmiðlum.

Þetta segir í tilkynningu frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en lýst hefur verið yfir viðbúnaðarstigi eitt vegna skólahalds í dag vegna óveðursins sem gengur yfir landið.

Lýsing á viðbúnaðarstigi eitt:

„Röskun getur orðið á skólastarfi vegna veðurs ef starfsfólk á erfitt með að komast í skóla. Við þessar aðstæður eru skólar engu að síður opnaðir og taka á móti nemendum og þeir geta dvalið þar á meðan skipulagt skólahald á að fara fram.

Mjög mikilvægt er að foreldrar fylgi börnum til skóla og yfirgefi þau alls ekki fyrr en þau eru í öruggum höndum starfsfólks. Í upphafi skóladags getur verið að mönnun skóla sé takmörkuð. Foreldrar geta þá búist við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Foreldrar eru hvattir til að taka slíkum beiðnum vel.

Geisi óveður við lok skóladags er metið hvort óhætt sé að senda börnin heim eða hvort ástæða er til að foreldrar sæki börn sín. Þá eru gefnar út tilkynningar um það, auk þess sem skólarnir leggja sig fram um að hafa samband við foreldra.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert