„Sá bifreið koma á móti sér“

Lögreglan á Suðurnesjum segir það mikla mildi að engin slys hafi orðið á fólki þegar jepplingur valt milli akbrauta við Kúagerði á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Þar missti ökumaður stjórn á bifreiðinni þegar afturendi hennar rann til í hálku.

Lögreglan segir í tilkynningu sem hún sendi frá sér í dag, að bifreiðin hafi við þetta farið yfir á vinstri akrein, þaðan yfir hvilftina og svo yfir á gagnstæðan vegarhelming og í veg fyrir umferð sem kom úr gagnstæðri átt.

„Ökumaðurinn sá bifreið koma á móti sér og reyndi að beygja aftur til baka með þeim afleiðingum að bifreiðin valt á hliðina. Ökumaður bifreiðarinnar sem kom úr gagnstæðri átt, náði að hægja ferðina og beygja út á vegöxl til að koma í veg fyrir árekstur,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Fjórir voru í bifreiðinni og var fólkið að koma úr Bláa lóninu þegar óhappið varð.

Lögraglan bendir á, að nokkur atvik af svipuðu tagi hafi orðið á þessum vegarkafla á undanförnum árum. Þá segir að þarna séu engin vegrið á milli akbrauta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert