Össur í 1. sæti, Sigríður í 2. sæti

Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson. Ómar Óskarsson

Rétt í þessu voru tilkynnt úrslit í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík og varð Össur Skarphéðinsson í fyrsta sæti. Ekki þurfti að breyta reglum um fléttulista. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir varð í öðru sæti og munu þau tvö því leiða framboðslistana í Reykjavík.

Þrír sóttust eftir fyrsta sætinu, auk Össurar og Sigríðar bauð Valgerður Bjarnadóttir sig fram í 1.-2. sæti.

Á kjörskrá voru 6.669. 2514 greiddu atkvæði. Tvö atkvæði voru ógild og átta auð og þannig 2.504 gild.

Fyrstu átta sæti listans eru bindandi kosning. Niðurstöður voru á þessa leið:

1. sæti Össur Skarphéðinsson með 972 atkvæði í 1. sæti

2. sæti Sigríður Ingibjörg Ingadóttir með 1.322 atkvæði í 1.-2. sæti

3. sæti Helgi Hjörvar með 1.205 atkvæði í 1.-3.sæti

4. sæti Valgerður Bjarnadóttir með 1.255 atkvæði í 1.-4. sæti

5. sæti Skúli Helgason með 1.246 atkvæði í 1.-5. sæti

6. sæti Björk Vilhelmsdóttir með 1.350 með atkvæði í 1.-6. sæti

7. sæti Mörður Árnason með 1.477 atkvæði í 1.-7. sæti

8. sæti Anna Margrét Guðjónsdóttir með 1.381 atkvæði í 1.-8. sæti

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Anna Margrét Guðjónsdóttir og Skúli …
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Anna Margrét Guðjónsdóttir og Skúli Helgason á NemaForum í kvöld þar sem úrslit flokksvals Samfylkingarinnar í Reykjavík voru kunngjörð.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar var í 2. sæti í …
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar var í 2. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert