4 af 12 þingmönnum VG hætta

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ljóst er að fjórir núverandi þingmenn VG verða ekki í kjöri á næsta kjörtímabili. Þetta eru Björn Valur Gíslason, sem ekki náði í öruggt sæti í forvali um helgina, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Þuríður Backman og Þráinn Bertelsson sem ekki sækjast eftir endurkjöri.

VG fékk 14 þingmenn kjörna í síðustu kosningum. Þrír þingmenn sögðu sig úr þingflokknum á kjörtímabilinu, Ásmundur Einar Daðason, Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason. Einn gekk til liðs við flokkinn, Þráinn Bertelsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert