Sögðust ekki vita að þeir væru innan þjóðgarðs

Frá Þingvöllum.
Frá Þingvöllum. mbl.is/Golli

Mennirnir tveir sem voru með hlaðnar haglabyssur á rjúpnaveiðum á Þingvöllum í gær sögðust ekki hafa vitað að þeir væru innan þjóðgarðs. Mennirnir voru á Gjábakkavegi er lögreglan hafði afskipti af þeim.

Lögreglunni á Selfossi barst ábending í hádeginu í gær um rjúpnaveiðimenn á Þingvöllum. Haft var samband við Landhelgisgæsluna sem brást snarlega við með því að flýta þyrluæfingaflugi sem var fyrirhugað síðar um daginn. Þyrlu var flogið yfir svæðið með lögregluþjón innanborðs. 

Afskipti voru höfð af tveimur mönnum sem voru á Gjábakkavegi innan þjóðgarðs með hlaðnar haglabyssur. Byssurnar voru haldlagðar. Hvorugur mannanna höfðu náð bráð og þeir báru því við að hafa ekki vitað að þeir væru innan þjóðgarðs. 

Frásögn þeirra gefur tilefni til að að árétta að menn kynni sér vel hvar er heimilt að vera við fuglaveiðar og hvar ekki. „Lögreglan á Selfossi er afar þakklát Landhelgisgæslunni sem ætíð hefur verið boðin og búin þegar til hennar hefur verið leitað við löggæsluverkefni sem ekki verða unnin með góðu móti nema með þyrlu,“ segir í frétt lögreglunnar á Selfossi.

  Lögreglu hafa borist spurnir af því að nokkrir rjúpnaveiðimenn hefðu látið sig hverfa eins og minkar í holu þegar þeir urðu þyrlunnar varir og heitið því að þeir myndu ekki reyna veiðar í Þingvallaþjóðgarðinum aftur.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert