Tekjur ríkissjóðs 41 milljarði hærri en í fyrra

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu tíu mánuði ársins sýnir að handbært fé frá rekstri batnaði á milli ára og var neikvætt um 37 milljarða króna samanborið við 58,9 milljarða á sama tímabili 2011.

Tekjur reyndust 41,1 milljarði króna hærri en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 15,6 milljarða króna milli ára.

Þetta er betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 56,1 ma.kr. Hluti af því fráviki skýrist með því að raundreifing gjalda og tekna hefur verið önnur en gert var ráð fyrir. Inni í heimildum er búið að taka tillit til fjárheimildastöðu frá fyrra ári, segir í frétt á vef fjármálaráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert