Yfirmönnum fækkað um 40%

Af vef ríkislögreglustjóra

Frá árinu 2007 til ársins 2012 hefur yfirmönnum hjá embætti ríkislögreglustjóra fækkað um 40%. Árið 2007 störfuðu tveir aðstoðarríkislögreglustjórar, þrír yfirlögregluþjónar og 10 aðstoðaryfirlögregluþjónar. Árið 2008 hurfu báðir aðstoðarríkislögreglustjórarnir til annarra starfa en ekki var ráðið í stöður þeirra. Þá hefur yfirlögregluþjónum og aðstoðaryfirlögregluþjónum einnig fækkað um fjóra á þessu árabili miðað við næstu áramót.

Þetta kemur fram í frétt á vef Ríkislögreglustjóra.

 Frá árinu 2007 til ársins 2012 hefur samanlagður niðurskurður fjárveitinga til embættis ríkislögreglustjóra numið um 33%. Þrátt fyrir þetta hefur reynst unnt að reka embættið innan fjárheimilda. Ráðist var í endurskipulagningu og tilfærslur verkefna og fækkun yfirmanna. Heildarfækkun starfsmanna nemur um 15%, en fækkunin er mest í hópi yfirmanna, segir í fréttinni.

 „Ríkislögreglustjóri hefur lagt áherslu á að forgangsraða niðurskurði þannig að hann skerði sem minnst þjónustu við almenning og því hefur sú leið verið farin að fækka yfirmönnum en ekki almennum lögreglumönnum,“ segir í frétt ríkislögreglustjóra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert