Styður Guðbjart

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mun ekki gefa kost á sér í formannsembættið hjá Samfylkingunni.

Í þættinum Vikulokunum á Rás eitt lýsti hún yfir stuðningi við framboð Guðbjarts Hannessonar.

Tveir hafa boðið sig fram til þess að gegna embætti formanns Samfylkingarinnar er Jóhanna Sigurðardóttir lætur af því embætti: Árni Páll Árnason og Guðbjartur Hannesson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert