Ráðuneyti sameinast um að styðja netöryggisverkefnið SAFT

Tónlistarstriði nemenda sem flutt var við undirskriftina.
Tónlistarstriði nemenda sem flutt var við undirskriftina.

Heimili og skóli – landssamtök foreldra, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjóri og Barnaheill – Save the Children á Íslandi gerðu í dag tímamótasamning við þrjú ráðuneyti mennta- og menningarmála, innanríkis- og velferðarmála um stuðning við SAFT verkefnið til ársloka 2014.

 Samningurinn var undirritaður í morgun við athöfn í Langholtsskóla og snýr að rekstri SAFT-verkefnisins á Íslandi. Markmið SAFT er að reka vakningarátak og fræðslu um örugga og jákvæða notkun netsins meðal barna og ungmenna, foreldra, kennara, fjölmiðla og þeirra sem starfa við upplýsingatækni. Barist er gegn ólöglegu efni á netinu og börnum og ungmennum veitt aðstoð í gegnum hjálparlínu. Mikið er lagt upp úr samstarfi við önnur lönd á  Norðurlöndum og jafnframt er verkefnið hluti af netöryggisáætlun Evrópusambandsins sem nær til allra landa á Evrópska efnahagssvæðinu.

 Öflugt starf er unnið á vegum SAFT á sviði forvarna og fræðslu, segir í fréttatilkynningu.

 Kannanir sýna fram á góðan árangur verkefnisins á Íslandi og aukna vitundarvakningu um öryggi í netnotkun. Til marks um þetta voru þrjú verkefni á vegum SAFT á Íslandi nýlega valin meðal þeirra bestu í Evrópu á sínu sviði. Ungmennaráð SAFT hefur einnig vakið athygli fyrir vasklega framgöngu, meðal annars í jafningjafræðslu og með þátttöku í þróun rafrænna skilríkja sem nýst geta á samfélagssíðum á borð við Facebook. Ungmennaráðið tók þátt í að stofna Nordic Youth IGF (Internet Governance Forum - norrænt ungmennaráð um stjórnsýslu Internetsins) með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar og mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Á þennan hátt hefur SAFT-verkefnið átt frumkvæði að því að mynda samráðsvettvang um netið á Íslandi.

 Þrjú verkefni sameinast í SAFT; hjálparlína, ábendingalína og vakningarátak. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur lagt sérstaka áherslu á vakningarátaksverkefni og innanríkisráðuneytið hefur lagt áherslu á verkefni tengd hjálparlínu og verkefni tengd ábendingalínu (meðal annars með áframhaldandi samstarfi við Póst- og fjarskiptastofnun og Ríkislögreglustjóra).

Við athöfnina, sem sett var af Hreiðari Sigtryggssyni, skólastjóra Langholtsskóla, flutti hópur nemenda úr skólanum tónlistaratriði við mikinn fögnuð gesta. Að því loknu kynnti Ketill B. Magnússon, formaður Heimilis og skóla, efni samningsins, sögu verkefnisins og helstu verkefni sem fyrir liggja. Til stóð að Hafþór Líndal, fulltrúi ungmennaráðs SAFT, héldi stutt erindi og afhenti ráðherrum eintak af skýrslu Norræna ungmennaráðsins um stefnumótun á netinu, en Hafþór var veðurtepptur á Akureyri og komst því ekki. En hann dó ekki ráðalaus, heldur sendi erindi sitt í farsíma Hrefnu Sigurjónsdóttur, framkvæmdastjóra Heimilis og skóla, sem flutti það fyrir hans hönd og afhenti ráðherrum skýrsluna.

Að lokinni undirskrift tóku til máls mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, og velferðarráðherra, Guðbjartur Hannesson. Öll voru þau sammála um mikilvægi þess að standa vörð um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga og því væri undirritun þessa samnings mikið ánægjuefni. Þökkuðu þau Heimili og skóla sérstaklega fyrir að hafa tekið verkefnið upp á sína arma og fyrir að stýra þar góðu samstarfi lykilaðila. Árangurinn hefur nú þegar sýnt sig en betur má ef duga skal og er þessi tímamótasamningur viðleitni í þá átt, segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert