Össur fordæmir nýjar landtökubyggðir

AFP

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur fordæmt þá ákvörðun ísraelskra stjórnvalda að heimila nýja landtökubyggð í útjaðri austurhluta Jerúsalem. Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins.

Fram kemur að tilkynnt hafi verið um það á föstudag, að reisa ætti þrjú þúsund ný hús á svæði milli Austur-Jerúsalem og landtökubyggðarinnar Maale Adumim á Vesturbakkanum, tæplega sólarhring eftir að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hafi með afgerandi stuðningi samþykkt að veita Palestínu stöðu áheyrnarríkis.

Össur hvetur ísraelsk stjórnvöld eindregið til að afturkalla ákvörðun sína en hefja þess í stað viðræður við Palestínumenn um varanlegan frið.

„Með þessari framgöngu eru ísraelsk stjórnvöld að refsa Palestínumönnum fyrir að vilja stíga skref í átt að tveggja ríkja lausninni sem Ísraelar hafa þó sjálfir ítrekað lýst sig fylgjandi. Þetta er algerlega óviðunandi,“ er haft eftir Össuri.

„Alvarlegast er þó að útvíkkun landtökubyggða á þeim stað, sem hér um ræðir, er vísvitandi tilraun til að slíta naflastrenginn milli Palestínumanna í austurhluta Jerúsalem og á Vesturbakkanum, eins og ég sá sjálfur í heimsókn minni þangað sumarið 2011. Afleiðing þessa gjörnings Ísraelsmanna getur ekki annað en skaðað líkurnar á því að tveggja ríkja lausnin, með Jerúsalem sem höfuðborg beggja ríkja, geti orðið að veruleika,“ segir Össur ennfremur.

Bent er á, að ísraelskar landtökubyggðir í Palestínu séu ólöglegar skv. alþjóðalögum en engu að síður búi nú meira en hálf milljón Ísraela á hernumdu svæðunum.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. mbl.is/Ómar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert